Terms of service

Skilmálar - Ostafár

Síðast uppfært: 23.4.25

Þessir skilmálar gilda um viðskipti við Ostafár, rekið af félaginu Merkider ehf, með lögheimili að Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi, Ísland. Með því að panta vörur í gegnum vefinn okkar samþykkir þú eftirfarandi skilmála.


1. Lög og varnarþing

Viðskipti og skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Komi til ágreinings skal hann sæta meðferð hjá Héraðsdómi Reykjaness.


2. Afbókunar- og skilaréttur

Afbókun pantana:
Pöntun má afbóka innan 12 klukkustunda frá því að hún er gerð, nema hún hafi þegar verið send í afhendingu. Afbókun skal berast skriflega á netfang Ostafárs, info@ostafar.is eða í gegnum vefsíðuform.

Skilaréttur og endurgreiðsla:
Vegna eðlis matvæla og viðkvæmra vara er enginn almennur skilaréttur á opnuðum eða skemmdum vörum. Ef vara berst gölluð eða skemmd skal hafa samband við Ostafár innan 12 klukkustunda frá móttöku og skal mynd af vörunni fylgja. Ef um sannaðan galla er að ræða, býðst annað hvort endurgreiðsla eða ný vara.


3. Afhendingarskilmálar

Afhendingarmáti:
Allar vörur eru afhentar með heimsendingu, sem Ostafár sjálft sér um.

Afhendingartími:
Afhending fer fram innan 2 virkra daga frá pöntun, nema annað sé tekið fram. Boðið er upp á fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu. 

Flutningsaðili:
Ostafár annast sjálft allar sendingar. Enginn utanaðkomandi flutningsaðili er notaður nema verið sé að senda utan höfuðborgarsvæðis.

Sendingarkostnaður:
Sendingarkostnaður getur verið breytilegur eftir svæðum. Verð fyrir heimsendingu er alltaf sýnilegt áður en kaup eru staðfest og kemur fram í greiðsluferli.


4. Önnur ákvæði

Ostafár áskilur sér rétt til að uppfæra skilmála hvenær sem er án fyrirvara. Allar breytingar taka gildi við birtingu þeirra á vefsíðunni.

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi þessa skilmála, vinsamlegast hafðu samband við okkur í gegnum info@ostafar.is eða inn á vefsíðunni ostafar.is